Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Myndir

Gagnasafn

Mánudagur til mćđu...

24. júlí 2006 klukkan 21:04
dirty-dancing-2-wallpaper-3.jpgdirty-dancing-2-wallpaper-2.jpgdirty-dancing-2-wallpaper-1.jpg

Já enn einn ömurlegur mánudagur runninn upp eftir annars frábæra helgi í faðmi ættingja. Eyddi helginni á ættaróðalinu Ánastöðum þar sem bræður afa og afkomendur þeirra komu saman sér til skemmtunar og yndisauka. Verð reyndar að viðurkenna að svona samkomur taka nú bara lúmskt á. Fyrir utan ótakmarkaða syfju og leti eftir á, þá skreiðist maður heim allur lurkum laminn. Þar sem að ég hef nú hingað til talist frekar íþróttasinnuð ákvað ég að sýna lit og taka þátt í leikjum og öðru sprelli á mótinu. Hefði betur sleppt því, þar sem að kellan lendir í vægast sagt grófri tæklingu og það frá engum öðrum en eigin föður, Ólafi H. Stefánssyni. Alveg magnað hvað þetta eldra fólk gjörsamlega missir sig í svona leikjum. En allavega þá fékk mín sko heldur betur flugferð sem alfarið stílast á hann pabba gamla Glottandi Þess má geta að sá og hinn sami maður fór hamförum á trampólíninu síðar um nóttina og kæmi mér ekkert á óvart að hann kenndi sér meins eftir þær æfingar. Á heildina litið var þetta allt saman hin besta skemmtun og ekki skemmdi frábært veður fyrir.  

Annars varður vinnuvikan í styttri kanntinum að þessu sinni. Fer í 4 daga frí á frá föstudegi til mánudags og er planið að eyða þeim dögum í einhver skemmtilegheit, s.s. Rvk. ferð – klippingu – vinnu í gamla bænum og hugsanlega eitt stykki ball hver veit Glottandi

 
Sara- fer í fríiðSvalur

Ef ég ćtti eina ósk, veistu hvers ég myndi....

10. júlí 2006 klukkan 19:30



Ég vil sumar!!. Hreinlega þrái það að komast í almennilegan  hita, sólböð og fínheit. Vil logn og sól í nokkra daga, takk fyrir takk!
Já ég veit ég er frek en mér er alveg sama...finnst ekkert of mikið að biðja um nokkrar gráður til viðbótar hingað norður á hjara veraldar þar sem að það er aldrei þolanlegt veður 2 dag í röð!! Legg til að við flytjum þessa  blessuðu eyju okkar e-ð lengra suður á bóginn í stað þess að hýrast hérna lengst norður í ballarhafi.

En annars er ég hress sko HlæjandiÞað styttist í ball á Blönduósi og er kellan að hugsa um að skella sér. Hlakka til að sjá liðið að norðan/austan og auðvitað alla hina vinina líka  Glottandi Á reyndar eftir að redda farinu þar sem ég er ennþá aumingi án bílprófs... en það stefnir nú allt í rétta átt skal ég segja ykkur. Fór nefnilega í fyrsta ökutímann í gær og svo aftur í morgun. Og gekk bara svona ágætlega. Svo vonandi verður kellan rúntandi á Benzanum sínum í lok sumars Hlæjandi
 
En nóg af bulli í bili

Sara Ólafs - á mörkum hins byggilega heims, hvað veðurfar varðar


Sumariđ flýgur

07. júlí 2006 klukkan 04:59
 Já ég er mætt aftur og bara nokkuð tímanlega í því, að mér finnst allavega.

Í sumar hefur kellan ýmislegt brallað. Maí fór að mestu í vinnu og útreiðar. Fram undir miðjan júní hélt hún til í gróðurhúsinu þar sem hún kepptist við að hjálpa móður sinni. En þegar um fór að hægjast á því sviði færði hún sig um set, alla leið niður á byggðasafn en þar starfar hún í sumar.

Dagarnir 22. -27. júní sl. fóru í hestaferð. Já feðginin skelltu sé í ferð ásamt góðum kunningjum en farið var um Skagann að þessu sinni. Bongó blíða og feikna fjör þarHlæjandi
(Skelli kannski inn myndum úr ferðinni, svona þegar ég er búin að átta mig betur á þessu sistemi hérna á bloggar.is)

Núna um síðustu helgi var svo einskonar vinnuhelgi hérna á Reykjum en hingað mætti stór hluti ættarinnar hennar mömmu til að vinna í gamla húsinu sem stefnt er að að gera að sumarhúsi/partypleisi fyrir fjölskylduna. Mikið stuð var á liðinu eins og við er að búast þegar þær systur og afkvæmi þeirra koma saman
 Svalur

Um næstu helgi er planið að ríða frá Skagaströnd að Grund í Vesturhópi og mjaka þannig hrossunum okkar í átt að heimaslóðum en þau hafa verið á ströndinni sl. 2 vikur. Er farin að hlakka mikið til að fá þau heim aftur þar sem að ákveðin fráhvarfseinkenni hafa verið að gera vart við sig.

Ákvað að hafa þetta bara stutt og laggott að þessu sinni
Þangað til næst...                                                                                
Sara - í tveggja daga frí Svalur
           

Undur og stórmerki svo ekki sé meira sagt...

05. júlí 2006 klukkan 17:55

Já kellan ákvað í gær að nú væri tími til kominn að setja mark sitt á bloggheiminn, svona þar sem að örggulega annarhver maður í veröldinni tilheyrir þessu rugli. Maður verður nú að vera eins og allir hinir er það ekki annars...Glottandi
Nei aðal ástæðan fyrir þessu uppátæki mínu er sú að ég hef að undanförnu haft óvenju mikinn tíma aflögu og þar sem að kellan er ein af þeim sem teljast með 10 þumalfingur þegar kemur að prjónaskap eða annarri handavinnu varð bloggið fyrir valinu. Það er svo allt annað mál hversu lengi hún endist í þessu en það er eitthvað sem tíminn mun leiða í ljós síðar Hlæjandi
Ætla að segja þetta gott í bili ...færi ykkur frekari fréttir af mér í næsta bloggi..hvenær sem það nú verður Glottandi

Kv. Sara Ólafsd.

Leit

Gjöfin

Ég veit ekki hvort ţú hefur,
huga ţinn viđ ţađ fest.
ađ fegursta gjöf sem ţú gefur,
er gjöfin sem varla sést.


Ástúđ í andartaki,
augađ sem glađlega hlćr,
hlýja í handartaki,
hjarta sem örar slćr.


Allt sem ţú hugsar í hljóđi,
heiminum breytir til.
Gef ţú úr sálarsjóđi,
sakleysi, fegurđ og yl


Höfundur: Úlfur Ragnarsson

Könnun

Hvađ á kellan eftir ađ endast í blogginu ?